21.5.2008 | 09:59
Of mikið að gera
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2008 | 13:24
Uppitími - 0
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2008 | 15:42
Skoðun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2008 | 13:52
Helgin
Frekar "róleg" helgi afstaðin...
Loka undirbúningurinn fyrir prófið á föstudag fór fram í Borgarleikhúsinu á Jesus Christ Superstar. Fínustu tónleikar sem ég er viss um að hjálpuðu helling til þess að ég náði prófinu á föstudeginum (eins og ég var búinn að lofa).
BarSafaríið var mjög fínt, byrjuðum á Ásláki í mosó, fórum svo á sportbar í grafarholti þar sem við trufluðum pókermót, fórum þaðan í árbæinn á Blástein þar sem eigandinn tók myndir af okkur á gamla filmuvél. Á Bar8 í breiðholti (á móti FB) spjallaði ég við Litháa sem var þar þegar við komum. Fínasti gaur, skildi bara ekki orð af því sem hann sagði. Næsta stopp var á Catalina í hamraborg og ég hringdi svo í Lovísu rétt eftir miðnætti frá Tælenskum karókíbar á hlemmi þar sem hún kom og sótti mig. Er búinn að heyra sögur í morgun af innkaupakerrurallýi og hattasölu sem ég missti víst af.
Á laugardaginn versluðum við síðustu 2 stóru hlutina sem okkur vantaði til að klára undirbúning fyrir komu erfingjans. Keyptum rimlarúm í BabySam og skiptiborð í Ólafíu og Óliver sem ég dundaði mér við að púsla saman í gærkvöldi. Þórdís og Al buðu okkur í mat á laugardagskvöldinu, notaði tækifærið og fékk Garmínuna mína til að leiðbeina mér þangað með nýja íslandskortinu sem tengdapabbi var svo góður að gefa mér.
Sunnudagurinn fór svo í tiltekt í geymslunni og smá golfkylfupúss áður en við fórum í kaffiboð til Siggu Lóu þar sem við frændsystkinin komum saman til að kasta kveðju á Kristófer sem ætlar að stinga af til Akureyris á miðvikudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 21:30
Tími
Rosalegur munur er það að hafa loksins tíma til að huxa um eitthvað annað en vinnuna 24/7. Spurning hvort ég eigi ekki bara eftir að hafa smá tíma til að blogga af og til.
Fyrsta vikan í nýrri vinnu var fín. Fór að mestu í að kynnast nýjum vinnufélögum og að læra eitthvað nýtt, sem er reyndar örugglega það sama og ég á eftir að gera næstu nokkrar vikur líka. Næsta föstudag fer ég í próf úr bæklingnum sem ég las um daginn (1005 bls) og held svo uppá það að hafa náð því um kvöldið með því að fara á pöbbarölt, svokallað BarSafarí eins og Tryggvi kallar það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)